Golf

Myndir: 86 sentímetra frá Toyota Yaris á Golfstöðvarmótinu

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Vísir/Daníel
Það voru um 220 kylfingar sem tóku þátt í Golfstöðin Open mótinu sem fram fór síðastliðinn laugardag á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Þetta er í fyrsta sinn sem Golfstöðin stendur fyrir mótinu og má með sanni segja að vel hafi til tekist.

Leikið var með Texas Scramble leikfyrirkomulagi en þar leika tveir kylfingar saman í liði. Urriðavöllur skaraði sínu fegusta og veðrið lék við kylfinga. Skorið var eftir því og voru það kylfingarnir Guðjón Reyr Þorsteinsson og Pétur Pétursson úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ sem fóru með sigur af hólmi. Þeir léku á 59 höggum nettó eða tólf höggum undir pari.

Toyota Yaris bifreið var í verðlaun fyrir holu í höggi á 13. holu. Enginn sló draumahöggið að þessu sinni en nokkrir voru nálægt því að hreppa bifreiðina eftirsóttu. Sigurður Kristjánsson var 86 sentímetrum frá holu eftir upphafshögg. Nánari úrslit í mótinu má finna hér. Golfstöðin þakkar öllum þeim sem tóku þátt.

Vísir/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×