Handbolti

Aron öflugur er Kiel komst aftur á sigurbraut

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron Pálmarsson átti góðan leik í kvöld.
Aron Pálmarsson átti góðan leik í kvöld. Vísir/Getty
Aron Pálmarsson fór heldur betur á kostum í 32-29 sigri Kiel á Wetzlar í þýska handboltanum í kvöld.

Aron náði sér ekki á strik í síðasta leik Kiel í óvæntu tapi gegn Balingen en var heldur betur klár í slaginn í kvöld.

Hann skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkum Kiel og fimm af 15 mörkum Kiel í fyrri hálfleik en þýsku meistararnir voru með tveggja marka forskot í hálfleik.

Þrátt fyrir ágætis rispur hjá Wetzlar í seinni hálfleik náði Kiel að halda forskotinu það sem eftir lifði leikins og komst aftur á sigurbraut með 32-29 sigri.

Aron var öflugur í seinni hálfleik en hann skoraði 4 mörk í seinni hálfleik og 9 mörk alls í leiknum.

Kiel skaust upp í 4. sæti með sigrinum en liðið hefur óvænt tapað tveimur af fyrstu fimm leikjum tímabilsins og viðurkenndi Alfreð í viðtali á dögunum að hann væri ósáttur með spilamennsku liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×