Handbolti

Jafntefli hjá Tandra og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tandri skoraði eitt mark í kvöld.
Tandri skoraði eitt mark í kvöld. Heimasíða Rioch
Tandri Már Konráðsson og félagar hans í sænska handboltaliðinu Rioch HK gerðu 23-23 jafntefli gegn Redbergslids IK í kvöld.

Leikurinn var afar jafn, en liðin skiptust á að hafa forystuna og sjaldan munaði meira en einu marki á þeim. Rioch var einu marki yfir í leikhléi, 12-11.

Tandri skoraði eitt mark fyrir Rioch í leiknum, en liðið er nú með þrjú stig eftir sex leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×