Handbolti

Aron með þrjú í sigri Kiel

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aron lét 3 mörk duga í þetta skiptið
Aron lét 3 mörk duga í þetta skiptið vísir/getty
Kiel lagði Lu-Friesenheim 29-21 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar þar sem liðið er tveimur stigum frá toppnum.

Kiel var lengi að hrista Lu-Friesenheim almennilega af sér en Kiel var fimm mörkum yfir í hálfleik 13-8 og var sá munur lengi á liðunum í seinni hálfleik.

Kiel náði mest tíu marka forystu seint í leiknum og var sigurinn aldrei í hættu.

Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Kiel en Marko Vujin var markahæstur með 7 mörk. Joan Cannellas skoraði 6 og Niclas Ekberg 5. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel.

Philipp Grimm skoraði 6 mörk fyrir Lu-Friesenheim og Stephan Just 5.

Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 12 stig en Lu-Friesenheim er í 17. sæti með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×