Handbolti

Aron og Kolding sóttu sigur til Tyrklands

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/daníel
Danska liðið Kolding sem Aron Kristjánsson þjálfar lagði Besiktas frá Tyrklandi 33-24 í annarri umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag.

Sigur Kolding var öruggur en Kolding var fimm mörkum yfir í hálfleik 16-11.

Kolding hefur unnið báða leiki sína í B-riðli og er á toppnum ásamt Barcelona.

Bo Spellerberg skoraði 7 mörk fyrir Kolding og Torsten Laen 6. Ramazan Döne skoraði 6 mörk fyrir Besiktas sem hefur tapað báðum leikjum sínum í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×