Handbolti

Stórleikur Arons með Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron átti frábæran leik með Kiel í kvöld.
Aron átti frábæran leik með Kiel í kvöld. Vísir/Getty
Aron Pálmarsson átti sannkallaðan stórleik þegar lið hans, Kiel, vann La Rioja frá Spáni í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 34-32.

Aron skoraði tólf mörk á leiknum og fór á kostum. Með sigrinum komst Kiel á blað í Meistaradeildinni þetta tímabilið eftir að hafa tapað fyrir HC Zagreb í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Kiel er því með tvö stig í A-riðli en þess ber að geta að franska stórliðið PSG er einnig í sama riðli.

Albert Rocas og Francisco Javier Garcia skoruðu sjö mörk hvor fyrir La Rioja en Steffen Weinhold kom næstur í liði Kiel með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×