Handbolti

Mors-Thy vann Íslendingaslaginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vignir skoraði þrjú.
Vignir skoraði þrjú. Vísir/Ole Nielsen
Mors-Thy vann Midtjylland 20-17 í Íslendingaslag í danska handboltanum í dag.

Gestirnir leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 9-11, en Mors setti í gírinn í síðari hálfleik og vann að lokum þriggja marka sigur.

Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Midtjylland og Guðmundur Árni Ólafsson gerði jafn mörg fyrir Mors-Thy. Róbert Aron Hoostert komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×