Handbolti

Atli Ævar markahæstur í sigri Guif

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar í eldlínunni.
Atli Ævar í eldlínunni. Mynd/Guif.nu
Atli Ævar Ingólfsson var markahæstur í sigri Guif á Sönderjyske í EHF-bikarnum í handknattleik í dag.

Atli Ævar skoraði sjö mörk, en Guif vann 29-27 eftir að hafa leitt í hálfleik 14-12. Aron Rafn Eðvarðsson stóð í marki Guif, en þjálfari liðsins er Kristján Andrésson.

Daníel Freyr Andrésson stendur í marki SönderjyskE.

Síðari leikur liðanna fer fram eftir nákvæmlega viku, en þá verður leikið í Danmörku.

Eftirlitsmaður EHF á leiknum var enginn annar en Kristján Halldórsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×