Handbolti

Munum leysa þetta innan liðsins

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. vísir/getty
Það hefur ekki gengið sem skildi hjá liði Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, í vetur en Dagur er ekki að fara á taugum.

Liðið tapaði niður sjö marka forskoti gegn Wetzlar í síðasta leik og gerði jafntefli.

„Ég veit hvað er að en mun ekki ræða það í fjölmiðlum. Við munum leysa þetta innan okkar liðs," sagði Dagur við þýska fjölmiðla.

Liðið situr í tíunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en stefnan var tekin á að vera meðal fimm efstu liða.

„Þetta er ekkert alslæmt og við erum ekkert svo fjarri markmiðum okkar. Það á enn eftir að spila helling af handboltaleikjum."

Dagur gerði liðið að bikarmeisturum á síðustu leiktíð en liðið hefur ekki alveg náð að fylgja þeim árangri eftir núna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×