Handbolti

Ellefu sigrar í röð hjá Guðjóni Val og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/Stefán
Guðjón Valur Sigurðsson lét sér nægja að skora tvö mörk í kvöld þegar Barcelona vann fimm marka útisigur á BM. Villa de Aranda, 32-27, í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Guðjón Valur nýtt 2 af 3 skotum sínum í leiknum, hann kláraði eina færið úr horninu en klikkaði á öðru hraðaupphlaupinu sínu.

Siarhei Rutenka var markahæstur hjá Barcelona-liðinu með sjö mörk og Wael Jallouz skoraði fimm mörk.

Barcelona er búið að vinna fyrstu ellefu leiki sína í deildinni en mótherjar kvöldsins voru í níunda sæti deildarinnar fyrir þessa umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×