Handbolti

Guðjón skoraði tvö í markaleik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur fljúgandi.
Guðjón Valur fljúgandi. Vísir/Aðsend
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk þegar Barcelona vann Flensburg í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld. Leikið var í Þýskalandi og var leikurinn mikill markaleikur.

Leikurinn var jafn og spennandi fyrir framan 6300 í Flensburg. Staðanvar jöfn í hálfleik 16-16, en í síðari hálfleik reyndust gestirnir frá Spáni sterkari og unnu að lokum fjögurra marka sigur; 33-37.

Kiri Lazarov átti afar góðan leik fyrir Barcelona, en hann skoraði tíu mörk. Næstir komu þeir Nikola Karabatic og Tomas Gonzales báðir með sjö.

Hjá Flensburg var það Holger Glandorf sem var markahæstur með ellefu, en næstur kom Daninn Anders Eggert með sex talsins.

Barcelona fór með sigrinum upp í efsta sæti riðilsins, en liðið er með níu stig að loknum fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×