Handbolti

Geir og félagar töpuðu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Geir í eldlínunni á síðustu leiktíð.
Geir í eldlínunni á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Lærisveinar Geirs Sveinssonar töpuðu á útivelli fyrir TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Lübbecke var ávallt skrefi á undan. Þeir tóku forystuna strax í upphafi leiks og leiddu í hálfleik, 14-10. Lokatölur urðu svo 29-25 sigur Lübbecke.

Drago Vukovic var markahæstur hjá heimamönnum með átta mörk og Christian Dissinger kom næstur með sex.

Andreas Rojewski og Robert Weber voru markahæstir hjá Geir með fimm mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×