Golf

Sá efnilegasti á leið til Bandaríkjanna

Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson. mynd/gsí
Efnilegasti kylfingur landsins, Gísli Sveinbergsson, skrifaði í gær undir samningt við Kent State-háskólann í Bandaríkjunum.

Hann verður þar á skólastyrk næstu árin. Að því er fram kemur á heimasíðu Keilis þá er Kent State gríðarlega sterkur skóli í golfinu.

Gísli var valinn efnilegastur pilta af afreksnefnd GSÍ 2014. Hann er einnig efstur íslenskra áhugamanna á heimslista áhugamanna (WAGR), en hann er í 107. sæti, sem er besti árangur Íslendings frá stofnun listans 2007.

Verður mjög áhugavert að fylgjast með drengnum á komandi árum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×