Handbolti

Guðjón Valur skoraði þrjú mörk í auðveldum sigri Barcelona

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson skorar mark.
Guðjón Valur Sigurðsson skorar mark. mynd/barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í stórliðinu Barcelona unnu enn einn auðveldan sigurinn í spænsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Börsungar fengu Seguros Zamora í heimsókn og unnu þrettán marka sigur, 38-25, eftir að vera níu mörkum yfir í hálfleik, 20-11.

Guðjón Valur skoraði þrjú mörk úr þremur skotum fyrir Barcelona, en markahæstur í liðinu var Spánverjinn Eduardo Gurbindo með sex mörk.

Barcelona er sem fyrr á toppi deildarinnar með 20 stig eða fullt hús eftir tíu umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×