Newcastle ekki tapað í seinustu níu | Enn eitt tapið hjá Leeds Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. mars 2022 21:53 Gott gengi Newcastle heldur áfram. Mike Hewitt/Getty Images Newcastle United vann góðan 2-1 sigur gegn Southampton er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og liðið hefur nú ekki tapað deildarleik síðan fyrir jól. Þá vann Aston Villa öruggan 3-0 sigur gegn Leeds, en þeir síðarnefndu hafa tapað sjö af seinustu átta deildarleikjum sínum.
Stuart Armstrong kom Southampton yfir á móti Newcastle eftir 25 mínútna leik áður en Chris Wood sá til þess að staðan var jöfn í hálfleik með marki sjö mínútum síðar. Það var svo Brasilíumaðurinn Bruno Guimaraes sem tryggði Newcastle 2-1 sigur með gullfallegu marki á 52. mínútu. Guimares tók þá boltann á lofti með hælnum og þrumaði honum þannig yfir Fraser Forster í marki Southampton. Newwcastle situr nú í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 31 stig eftir 27 leiki, fjórum stigum minna en Southampton sem situr í tíunda sæti eftir 28 leiki. Í leik Leeds og Aston Villa sá Philippe Coutinho til þess að þeir síðarnefndu foru með foyrstuna inn í hálfleikshléið með marki á 22. mínútu, áður en Matty Cash og Calum Chambers innsigluðu 3-0 sigur gestanna í síðari hálfleik. Aston Villa situr í níunda sæti deildarinnar með 36 stig eftir 27 leiki, en Leeds situr í 16. sæti með 23 stig, aðeins tveimur stigum fyrr ofan fallsvæðið. Að lokum vann Wolves sannfærandi 4-0 heimasigur gegn Watford eftir að hafa farið inn í hálfleikinn með 3-0 forystu.
Enski boltinn Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Fótbolti „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Fleiri fréttir Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Íslenski boltinn