Íslenski boltinn

Keflvíkingar bikarmeistarar

Keflvíkingar eru bikarmeistarar
Keflvíkingar eru bikarmeistarar Mynd/Daníel Rúnarsson
Keflvíkingar eru bikarmeistarar árið 2006 eftir frækinn 2-0 sigur á KR-ingum á Laugardalsvelli í úrslitaleik. Guðjón Antoníusson og Baldur Sigurðsson skoruðu mörk Keflvíkinga í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir að KR-ingar hafi lagað leik sinn í þeim síðari, var sigur Keflvíkinga fyllilega verðskuldaður. Þetta er fjórði bikarmeistaratitill félagsins og annar á þremur árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×