Fótbolti

Liðum fjölgar í efstu deild karla og kvenna

12 lið verða í Landsbankadeild karla og 10 lið verða í Landsbankadeild kvenna frá og með tímabilinu 2008, en breytingartillaga þess efnis var samþykkt á ársþingi KSÍ í dag. Þá var Eggert Magnússon kosinn heiðursforseti KSÍ.

Hlutirnir gerast hratt á ársþinginu og gerir KSÍ framvindu mála góð skil á heimasíðu sinni.  Flestar breytingartillögur sem lagðar voru fram fyrir þingið hafa verið samþykktar en hægt er að nálgast upplýsingar um þær á heimasíðu KSÍ.

Heimasíða KSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×