Sport

Skagafjarðarrall ræst í morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Skagafjarðarrall var ræst frá Sauðárkróki klukkan 9 í morgun í blíðskaparveðri. Fyrstu sérleiðir dagsins verða eknar um Mælifellsdal.Sextán áhafnir eru skráðar til leiks. Allir ökumenn skiluðu sér eftir fyrstu sérleið. Daníel og Ásta leiða keppnina. Sigurður Bragi og Ísak sprengdu dekk á fyrstu sérleið sem og Eyjólfur og Halldór Gunnar. Eyjólfur og Halldór Gunnar lentu í basli í dekkjaskipingu og töpuðu verulegum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×