Sport

Björgvin setti Íslandsmet

Mynd/heimasíða FRÍ

Björgvin Víkingsson úr FH setti í dag nýtt Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi á móti í Rhelingen í Þýskalandi. Hinn 25 ára gamli hlaupari bætti met Þorvaldar Þórssonar frá árinu 1983 um 21/100 úr sekúndu þegar hann kom í mark á tímanum 51,17 sekúndum.

Árangur Björgvins nægði honum til að hafna í 3. sæti í mótinu í Þýskalandi, en hann sigraði á móti í Heusenstammer á talsvert lakari tíma í fyrradag.

Þetta kemur fram á síðu Frjálsíþróttasambandsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×