Rúrik kom inn á - Kári meiddur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. mars 2008 18:02 Kári er hér til vinstri á myndinni að hita upp fyrirlandsleik Íslands og Lettlands í haust. Mynd/E. Stefán
Kári Árnason kom ekkert við sögu hjá AGF í dag en hann segir í samtali við Vísi að hann hafi átt við þrálát meiðsli að stríða. Danska deildin er nýfarin af stað eftir langt vetrarhlé en AGF gerði í dag markalaust jafntefli við Randers. Á sama tíma tapaði Viborg fyrir Nordsjælland á heimavelli, 3-2. Rúrik Gíslason kom inn á sem varamaður í liði Viborg á 79. mínútu. Bæði þessu lið eru í botnbaráttunni. Viborg er í næstneðsta sæti með fjórtán stig en AGF í því þriðja neðsta með 20 stig. „Við höfum átt í vandræðum með að skora og gert núna tvö markalaus jafntefli í röð. Við fengum þó fullt af færum í báðum leikjum," sagði Kári sem hefur ekki náð að spila í þessum tveimur leikjum vegna meiðsla. „Ég er búinn að vera meiddur allt undirbúningstímabilið og hef verið mjög óheppinn. Alltaf þegar ég jafna mig tekur eitthvað annað við. Nú síðast voru það hnémeiðsli en ég verð vonandi kominn á fullt á næstu dögum." Hann segist þó vera afar ánægður í Árósum. „Ég hef aldrei staðið mig betur í atvinnumennskunni en á fyrri hluta tímabilsins. En ég er auðvitað orðinn langþreyttur á þessum meiðslum." Aðspurður um stöðu sína í landsliðinu sagðist Kári ekkert hafa heyrt í Ólafi Jóhannessyni landsliðsþjálfara. „Ég hef ekkert heyrt í honum. Ég vona bara að ég sé ekki dottinn úr myndinni því ég vil fá að spila fyrir land og þjóð. Ég vildi gjarnan heyra í honum og tel það bara sanngjarnt að þeir fylgist með mér og sjái mig spila."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira