Stabæk meistari - Veigar með þrennu og Pálmi skoraði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2008 18:58 Veigar Páll fór á kostum með Stabæk í dag. Mynd/Scanpix
Stabæk tryggði sér formlega norska meistaratitilinn í knattspyrnu með 6-2 stórsigri á Vålerenga í næstsíðustu umferð tímabilsins. Veigar Páll Gunnarsson var í byrjunarliði Stabæk og skoraði þrjú af fyrstu fjórum mörkum liðsins. Hann var svo tekinn af velli á 77. mínútu og Pálmi Rafn Pálmason kom inn á í hans stað. Pálmi skoraði svo fimmta mark Stabæk á 82. mínútu. Eina liðið sem átti tölfræðilegan möguleika á að ná Stabæk var Fredrikstad sem vann 2-1 sigur á Molde á útivelli. Garðar Jóhannsson var í byrjunarliði Fredrikstad. Indriði Sigurðsson og Theodór Elmar Bjarnason voru í byrjunarliði Lyn sem vann 3-0 sigur á Álasundi. Haraldur Freyr Guðmundsson sat á bekknum hjá síðarnefnda liðinu. Þá gerðu Brann og Tromsö 1-1 jafntefli. Kristján Örn Sigurðsson tók út leikbann en Ólafur Örn Bjarnason og Birkir Már Sævarsson voru í byrjunarliði Brann. Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður í leiknum en Ármann Smári Björnsson sat á bekknum hjá Brann. Þegar ein umferð er eftir er Stabæk með sex stiga forystu á Fredrikstad. Lyn er í sjöunda sæti með 36 stig og Brann í því áttunda með 30. Álasund er í næstneðsta sæti með 23 stig og á mjög veikan möguleika á því að bjarga sér frá mögulegu falli í B-deildina.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Sjá meira