Handbolti

Sjötti sigurinn í röð hjá Björgvini Páli og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson er að gera flotta hluti í Sviss.
Björgvin Páll Gústavsson er að gera flotta hluti í Sviss. Mynd/Stefán

Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Kadetten ætla ekkert að slaka á í svissnesku úrvalsdeildinni en liðið vann öruggan ellefu marka sigur, 26-25, á Winterthur í kvöld. Bæði lið voru búin að vinna fyrstu fimm leiki sína í deildinni.

Kadetten hefur þar með unnið fyrstu sex leiki sína á tímabilinu með samtals 62 marka mun sem þýðir yfir tíu marka sigra að meðtaltali í leik. Björgvin Páll hefur staðið sig frábærlega í markinu og á mikinn þátt í velgengni liðsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×