Handbolti

GOG Svendborg missti af bronsinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. Mynd/Stefán

Ásgeir Örn Hallgrímsson og félagar í GOG Svendborg TGI töpuðu oddaleiknum á móti Team Tvis Holstebro í keppninni um þriðja sæti í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Ásgeir er meiddur og gat ekki spilað með.

Team Tvis Holstebro vann átta marka sigur, 34-26, í leiknum en hann fór fram á heimavelli liðsins. GOG Svendborg hafði tryggt sér oddaleik með fimm marka sigri, 27-22, í leik tvö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×