Handbolti

Arnór skoraði tvö í sigri FCK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FC Kaupmannahöfn er liðið vann 27-23 sigur á Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þá vann Kolding fimm marka sigur á Nordsjælland, 32-27. Gísli Kristjánsson komst ekki á blað hjá síðarnefnda liðinu.

FCK er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki en Nordsjælland er með fjögur stig í níunda sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×