Handbolti

Umfjöllun: Glæsilegur fyrri hálfleikur dugði til sigurs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði fimm mörk í dag, þar af eitt úr víti.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði fimm mörk í dag, þar af eitt úr víti. Mynd/Anton

Ísland vann í dag afar mikilvægan sigur á Austurríki, 29-25, í undankeppni EM 2010 í dag. Miðað við fyrri hálfleikinn hefði sigurinn mátt vera stærri.

Hefði Ísland ekki unnið í leikinn í dag væru möguleikarnir á að komast áfram í lokakeppnina í Danmörku og Noregi á næsta ári nánast úr sögunni. En með sigrinum er staða Íslands í riðlinum góð.

Ísland er auk Austurríkis með Bretlandi og Frakklandi í riðli. Frakkar eru taldir með sterkasta liðið í riðlinum og líklegast að baráttan standi á milli Íslands og Austurríkis um hvort liðið fylgi Frökkum í úrslitakeppnina.

Ísland átti frábæran fyrri hálfleik og náði þá níu marka forystu. Hins vegar var síðari hálfleikur langt í frá jafn góður og fór um margan þegar Austurríki náði að minnka muninn í þrjú mörk og enn tæpar níu mínútur til leiksloka.

En til allra lukku náðu íslensku leikmennirnir sér aftur á strik og kláruðu leikinn með miklum sóma.

Rakel Dögg Bragadóttir var fjarverandi vegna meiðsla og munar um minna í íslenska landsliðinu. En fljótlega var ljóst að þeir leikmenn sem voru mættir inn á völlinn voru með einbeitinguna og viljann í góðu lagi.

Snemma varð ljóst að íslenska vörnin var mjög föst fyrir og gekk austurríska liðinu erfitt að finna glufur á henni. Íslenska liðið virtist þó í fyrstu nokkuð taugaóstyrkt í sókninni en það varði í aðeins nokkrar mínútur.

Staðan var 5-5 eftir tíu mínútna leik og þá tók við hreint út sagt ótrúlegur leikkafli. Ísland breytti stöðunni í 8-5 með þremur mörkum á sömu mínútunni og hrreinlega keyrðu yfir austurríska liðið með gríðarlega sterkum varnarleik og afar hröðum og vel skipulögðum sóknarleik. Á þessum 20 mínútum skoraði Ísland fjórtán mörk gegn fimm frá gestunum.

Þær Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir og Harpa Sif Eyjólfsdóttir voru afar harðar í horn að taka í vörninni og þá var Ásta Birna Gunnarsdóttir sívinnandi sem framliggjandi varnarmaður. Hún gaf þeim austurrísku aldrei stundarfrið.

Þá komu varamenn eins og Stella Sigurðardóttir og Rut Jónsdóttir inn í sóknarleik íslenska liðsins með mjög öflugum hætti. Það virtist allt enda í austurríska markinu, sama hver skaut eða úr hvaða færi.

Austurríska liðið breytti um gír í síðari hálfleik og fór að spila mjög framliggjandi 3-2-1 vörn sem íslenska liðið lenti í tómum vandræðum með. Harpa Sif fékk fljótlega að líta sína þriðju brottvísun í leiknum og þar með rautt. Hún varð samt markahæsti leikmaður íslenska liðsins með sex mörk, þar af fimm í fyrri hálfleik.

Sóknarleikur íslenska liðsins hrundi og nú var komið að þeim austurrísku að sækja hratt fram og raða inn mörkunum. Sem fyrr segir komust þær mest í þriggja marka mun en mestu munaði um frammistöðu Berglindar Írisar Hansdóttur í markinu. Hún varði í síðari hálfleik nokkur afar mikilvæg skot og hélt þeim austurrísku í hæfilegri fjarlægð.

Þegar um fimm mínútur voru eftir og munurinn þrjú mörk skoraði íslenska liðið þrjú mörk í röð. Austurríki skoraði hins vegar tvö síðustu mörk leiksins og þar við sat.

Markamunur gæti spilað stórt hlutverk í lokastöðu riðilsins. Ef Ísland og Austurríki verða jöfn að stigum í lok riðlakeppninnar ræður markatala í innbyrðisviðureignum. Það er því vonandi að það verði nóg að hafa unnið fjögurra marka sigur í dag.



Ísland - Austurríki 29 - 25



Mörk Íslands (skot): Harpa Sif Eyjólfsdóttir 6 (9), Hrafnhildur Skúladóttir 5/1 (8/1), Hanna G. Stefánsdóttir 5/1 (9/1), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4 (6), Rut Jónsdóttir 3 (3), Karen Knútsdóttir 3 (7), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (1), Stella Sigurðardóttir 1 (3), Ágústa Edda Björnsdóttir 1 (5).

Varin skot: Berglind Hansdóttir 13/1 (37/4, 35%), Íris Björk Símonardóttir 0 (1/1).

Hraðaupphlaup: 10 (Hanna G. 3, Hrafnhildur 2, Anna Úrsúla 2, Karen 1, Harpa Sif 1, Ásta Birna 1).

Fiskuð víti: 2 (Anna Úrsúla 2).

Utan vallar: 8 mínútur.

Mörk Austurríkis (skot): Gorica Acimovic 7/2 (16/3), Katrin Engel 6/1 (13/2), Simona Spiridon 4 (6), Katharina Doppler 2 (2), Isabel Plach 2 (2), Stephanie Subke 2 (3), Marina Budecevic 1 (2), Beate Scheffknecht 1 (3), Nina Stumvoll (1).

Varin skot: Petra Blazek 5 (21/1, 24%), Natascha Schilk 4 (17/1, 24%).

Hraðaupphlaup: 7 (Acimovic 4, Scheffknecht 1, Budecevic 1, Plach 1).

Fiskuð víti: 5 (Spiridon 4, Plach 1).

Utan vallar: 2 mínútur.




Tengdar fréttir

Hrafnhildur: Spiluðum yfir getu

Hrafnhildur Skúladóttir segir að íslenska liðið hafi sjaldan spilað eins vel og það gerði í fyrri hálfleik gegn Austurríki í dag.

Anna Úrsúla: Var upp á líf og dauða

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir átti sannkallaðan stórleik er Ísland vann í dag sigur á Austurríki, 29-25, í undankeppni EM 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×