Stefán skoraði tvö og lagði upp eitt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. ágúst 2009 20:29 Stefán Þór Þórðarson í leik með Norrköping.
Stefán Þór Þórðarson fór mikinn er lið hans, Norrköping, vann 3-0 sigur á Sirius í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Stefán lagði upp fyrsta mark leiksins og skoraði svo hin tvö sjálfur. Hann lék allan leikinn í liði Norrköping, rétt eins og Gunnar Þór Gunnarsson. Alls hefur Stefán skorað fjögur mörk í átta leikjum með Norrköping í sumar. Annað Íslendingalið var í eldlínunni í sömu deild. Sundsvall vann 4-0 sigur á Ängelholm þar sem Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn og lagði upp tvö mörk fyrir Sundsvall. Hannes Þ. Sigurðsson var einnig í byrjunarliði Sundsvall en var skipt af velli á 42. mínútu. Sundsvall er í þriðja sæti deildarinnar með 38 stig en Norrköping því tíunda með 24 stig. Það var einnig leikið í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Trelleborg vann Halmstad, 4-0, og kom Jónas Guðni Sævarsson inn á sem varamaður í síðarnefnda liðinu á 73. mínútu. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson voru í byrjunarliði IFK Gautaborgar sem gerði markalaust jafntefli við Djurgården á útivelli. Theodór Elmar Bjarnason kom inn á sem varamaður í liðinu á 40. mínútu. Einn leikur fór fram í norsku úrvalsdeildinni. Sandefjord vann Brann á útivelli, 1-0. Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson, Birkir Már Sævarsson og Gylfi Einarsson voru allir í byrjunarliði Brann en Birki Má var skipt af velli á 57. mínútu. Ármann Smári Björnsson var á bekknum hjá Brann. Kjartan Henry Finnbogason kom inn á sem varamaður í liði Sandefjord á 83. mínútu. Brann er í fimmta sæti deildarinnar með 33 stig og Sandefjord í því áttunda með 28.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira