Handbolti

Örfáir miðar eftir á landsleikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson og félagar verða í eldlínunni í dag.
Róbert Gunnarsson og félagar verða í eldlínunni í dag. Mynd/Stefán

Aðeins um 100 miðar voru eftir um klukkan 14.30 á landsleik Íslands og Makedóníu sem hefst klukkan 17.00 í Laugardalshöllinni síðar í dag.

Miðasala hefur farið fram á netinu undanfarna daga og lýkur klukkan 15.00 í dag. Smelltu hér til að nálgast miðasöluna á netinu.

Ef einhverjir miðar verða eftir klukkan 15.00 fara þeir í sölu í anddyri Laugardalshallarinnar.

Leikurinn er afar mikilvægur en sæti á EM í handbolta sem fer fram í Austurríki á næsta ári er í húfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×