Handbolti

Ciudad Real spænskur meistari

Ólafur Stefánsson bætti enn einum titlinum í safnið í gærkvöld
Ólafur Stefánsson bætti enn einum titlinum í safnið í gærkvöld Nordic Photos/Getty Images

Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real urðu í gærkvöld Spánarmeistarar í handbolta eftir stórsigur á erkifjendum sínum í Barcelona 37-26.

Þetta er þriðja árið í röð sem Ciudad verður spænskur meistari, en liðið hefur nú fjögurra stiga forystu á Barcelona í töflunni fyrir lokaumferðina.

Ólafur Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Ciudad í leiknum í gær, en liðið stakk fljótlega af og hafði yfir 20-12 í hálfleik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×