Handbolti

Frakkland í úrslit á HM kvenna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn franska landsliðsins fagna.
Leikmenn franska landsliðsins fagna. Nordic Photos / AFP

Frakkland komst í morgun í úrslit heimsmeistarakeppninnar í handbolta kvenna sem fer fram í Kína.

Frakkar unnu Spánverja í undanúrslitum, 27-23, eftir að staðan var 12-10 í hálfleik.

Klukkan 13.15 mætast Noregur og Rússar í hinni undanúrslitaviðureigninni og verður leikurinn í beinni útsendingu á Rúv. Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×