Handbolti

Rut skoraði tvö í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Anton

Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Team Tvis Holstebro er liðið tapaði fyrir Álaborg, 36-25, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Þá skoraði Arna Sif Pálsdóttir tvö mörk fyrir Horsens sem tapaði fyrir Vejen á heimavelli, 28-21. Rakel Dögg Bragadóttir var ekki í leikmannahópi Vejen.

Vejen er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir átta leiki, Team Tvis með sex stig í áttunda sæti og Horsens með tvö í ellefta og næstneðsta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×