Handbolti

Björgvin Páll taplaus í jólafríið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgvin Páll í leik með Schaffhausen.
Björgvin Páll í leik með Schaffhausen. Mynd/AP
Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu í dag öruggan sigur á TSV Fortitudo Gossau í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta, 41-28.

Þetta var síðasti leikur liðsins fyrir jólafrí en liðið er taplaust á toppi deildarinnar eftir fimmtán umferðir. Liðið hefur unnið fjórtán leiki og gert eitt jafntefli.

Liðið er einnig á góðri leið með að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en Schaffhausen er sem stendur í fjórða sæti C-riðils og á þar að auki leik til góða, gegn botnliðinu Dinamo Minsk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×