Handbolti

Dregið í undanúrslit bikarins í hálfleik í Höllinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn hafa unnið bikarinn undanfarin tvö tímabil.
Valsmenn hafa unnið bikarinn undanfarin tvö tímabil. Mynd/Daníel

Í kvöld kemur það í ljós hvaða lið mætast í undanúrslitum Eimskips bikarsins í handbolta en það verður dregið í hálfleik á leik Íslands og Portúgal sem hefst klukkan 20.15 og verður í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.

Liðin sem eru í pottunum eru Grótta, Haukar, HK og Valur. Valur og Grótta mættust í bikarúrslitaleiknum í Höllinni í fyrra og eru því enn á réttri leið með að komast aftur í Laugardalshöllina þar sem Valsmenn hafa unnið bikarinn undanfarin tvö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×