Handbolti

Snorri Steinn og Arnór með 9 mörk saman í tíu marka sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson
Snorri Steinn Guðjónsson Mynd/Nordic Photos/Getty
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 5 mörk og Arnór Atlason var með 4 mörk þegar AG København vann 29-19 sigur á Nordsjælland i dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Arnór var sterkur í byrjun og skoraði 3 af fyrstu 6 mörkum liðsins. Staðan var 13-12 fyrir AG í hálfleik en í þeim seinni fór Kasper Hvidt í gang í markinu og fyrr en varir var staðan orðin 21-14 fyrir heimamenn.

Það var mikil stemmning í höllinni en 7500 mættu á völlinn og þurftu 300 frá að hverfa.

Mörk AG København: Mikkel Hansen 7, Snorri Steinn Guðjonsson 5, Arnór Atlason 4, Lars Jørgensen 3, Thomas Bruhn 3, René Toft Hansen 2, Jakob Green 2, Stefan Hundstrup 1, Christian Malmagro 1, Martin Bager 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×