Handbolti

Afar sárt tap fyrir Dönum - Ísland ekki í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Guðmundsson var valinn besti leikmaður íslenska liðsins í dag.
Ólafur Guðmundsson var valinn besti leikmaður íslenska liðsins í dag. Mynd/Stefán

Ísland komst ekki í undanúrslit á EM U-20 landsliða í Slóvakíu eftir afar sárt tap fyrir Dönum í dag, 34-33.

Danir skoruðu sigurmarkið á lokasekúndu leiksins. Ísland var í sókn þegar staðan var jöfn og fáar sekúndur eftir.

Hins vegar var boltinn dæmdur af íslenska liðinu og Danir náðu að bruna í sókn og skora sigurmark leiksins.

Staðan í hálfleik var 18-17, Dönum í vil, en þá skoruðu þeir einnig mark á lokasekúndum hálfleiksins.

Danir fylgja því Portúgölum í undanúrslit mótsins en Ísland spilar um 5.-8. sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×