Körfubolti

Haukur og félagar töpuðu í fyrsta sinn á tímabilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gary Williams, þjálfari Maryland, var ekki sáttur með sína stráka í nótt.
Gary Williams, þjálfari Maryland, var ekki sáttur með sína stráka í nótt. Mynd/AP
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Maryland töpuðu í nótt fyrsta leiknum sínum á tímabilinu þegar liðið tapaði 70-79 á móti Pittsburgh en leikurinn fór fram í Madison Square Garden í New York.

Haukur Helgi Pálsson fékk aðeins að spila í þrjár mínútur í leiknum og var með einn stolinn bolta og tvær villur á þessum tíma. Hann hafði spilað í 10,6 mínútur að meðaltali í fyrstu þremur leikjum liðsins sem unnust allir.

Maryland spilar um þriðja sætið í þessu 2K Sports Classic hraðmóti í nótt og fer leikurinn einnig fram í Madison Square Garden.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×