Handbolti

Arnór markahæstur í fimmtán marka sigri AG

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnór Atlason
Arnór Atlason Mynd/AP
Arnór Atlason skoraði átta mörk og var markahæstur í 36-21 sigri AG Kaupmannahöfn á nágrönnum sínum í FIF frá Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þetta var þrettándi deildarsigur AG-liðsins í röð en liðiðm er með fimm stiga forskot á Aarhus á toppi deildarinnar.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir AG-liðið en næstmarkahæsti leikmaður liðsins var danski landsliðsmaðurinn Mikkel Hansen með sjö mörk.

Þetta var besti leikur Arnórs markalega með AG á tímabilinu en hann hafði fyrir leikinn skoraði 35 mörk í 16 leikjum eða 2,2 mörk að meðaltali í leik. Snorri Steinn er áfram þriðji markahæsti leikmaður liðsins í deildinni en Arnór er nú í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×