Íslenski boltinn

Ingimundur: Aðstaðan er eins og hjá stóru félagi í Þýskalandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Varnaruxinn úr Breiðholtinu, Ingimundur Ingimundarson, verður orðinn leikmaður dönsku meistaranna AaB áður en vikan er öll. Ingimundur sat á samningafundi með forráðamönnum félagsins í gær og fór beint í kjölfarið að skoða íbúðir á svæðinu.

„Það er voða lítið sem á eftir að ganga frá. Þeir vilja fá læknisskoðun og skoða myndir sem voru teknar af hnénu á mér en ég meiddist aðeins undir lok síðasta tímabils. Þeir vilja sjá það til öryggis en ég ætti að fljúga í gegnum læknisskoðun. Ég ætla samt ekki að fagna neinu fyrr en allt er frágengið," segir Ingimundur rólegur.

Varnarmaðurinn hefur undanfarin ár spilað í Þýskalandi en hefur nú ákveðið að söðla um. Hann er að ganga í raðir mjög öflugs félags þar sem vel er staðið að öllum hlutum.

„Mér líst rosalega vel á allt hjá félaginu. Aðstaðan er alveg frábær og þetta er það langbesta sem ég hef kynnst á mínum ferli. Það eru bara stóru félögin í Þýskalandi sem hafa svona toppaðstöðu. Höllin er frábær og það er bara allt til fyrirmyndar hjá félaginu. Virkilega vel staðið að öllu og umgjörðin persónuleg sem er ánægjulegt," segir Ingimundur en bætir við að félagið sé ekkert moldríkt.

„Þetta félag hefur ekkert farið varhluta af kreppunni frekar en aðrir, en stendur samt vel. Liðið varð meistari og það skipti félagið miklu að komast í úrslitaleikinn. Nú bíður Evrópukeppnin og spennandi tímar."

Baráttan í dönsku deildinni stefnir í að verða spennandi á næstu leiktíð. Hún mun ekki bara standa á milli AaB og hins nýja ofurfélags AG Köbenhavn þar sem Guðmundur Guðmundsson er íþróttastjóri.

„Bjerringbo og Kolding eru líka afar sterk. Þetta ætti að geta orðið mjög spennandi og ég hlakka til að vera með í vetur fari svo að þetta gangi allt saman eftir. Það bendir flest til þess en maður veit aldrei hvað getur gerst," segir Ingimundur Ingimundarson, tilvonandi leikmaður AaB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×