Körfubolti

Logi og félagar í St. Etienne úr leik

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Logi Gunnarsson er kominn í frí.
Logi Gunnarsson er kominn í frí.
Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson og hans félagar í franska liðinu St. Etienne náðu ekki inn í úrslitakeppnina í C-deildinni þar í landi og eru því komnir í sumarfrí. Körfuboltalið St. Etienne var eitt sinn stórveldi en eftir að spillingarmál komst upp sem að tengdist eiganda liðsins var liðið dæmt niður í C-deild. Liðið hafnaði í tólfta sæti deildarinnar eftir slaka frammistöðu í byrjum vetrar en Logi var með tuttugu og sex stig í síðasta leik liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×