Handbolti

AGK með enn einn stórsigurinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór átti flottan leik í kvöld.
Arnór átti flottan leik í kvöld.

Danska ofurliðið AGK er sem fyrr með yfirburðastöðu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. AGK vann í kvöld tíu marka útisigur, 23-33, á Nordsjælland.

Arnór Atlason skoraði 4 mörk fyrir AGK og Snorri Steinn Guðjónsson 3 en alls skoruðu 11 leikmenn AGK í kvöld.

Ingimundur Ingimundarson var í banastuði fyrir AaB sem vann einnig flottan útisigur á Mors-Thy, 28-33.

Ingimundur skoraði 2 mörk í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×