Körfubolti

Skelfileg hittni og sárt tap - TCU úr leik í úrslitakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Rósa
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu 57-69 fyrir Utah í undanúrslitum Mountain West deildarinnar í nótt og deildarmeistararnir komust því ekki í úrslitaleikinn þar sem Utah mætir San Diego State.

Utah skoraði 18 stig fyrstu stig seinni hálfleiksins og komst þá 23 stigum yfir 47-24. TCU náði aldrei að grafa sig upp úr þeirri holu og varð því enn eitt árið að sætta sig við svekkjandi tap í úrslitakeppninni í Las Vegas.

TCU-liðið hitti skelfilega í leiknum en aðeins 17 af 58 skotum liðsins rötuðu rétta leið sem er 29,3 prósent hittni. Utah hitti hinsvegar úr 54,8 prósent skota sinna og vann að auki fráköstin 41-24.

Helena var með 12 stig, 3 fráköst og 1 stoðsendingu í leiknum en hún hitti aðeins úr 3 af 14 skotum sínum í nótt.

TCU fær að vita það á mánudaginn hvort liðið verði með í NCAA-úrslitakeppninni en þetta tap var ekki að auka líkurnar á að liðið komist að í þetta skiptið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×