Körfubolti

Jón Arnór með flottan leik í fyrsta sigurleik Granada

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson var næststigahæstur hjá CB Granada sem vann 77-74 sigur á Asefa Estudiantes í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Granada á tímabilinu en liðið hafði tapað fyrstu fjórum leikjum sínum.

Jón Arnór skoraði 15 stig í leiknum en hann hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum og var einnig með 2 stolna bolta og 2 fráköst á þeim 23 mínútum sem hann spilaði.

Útlitið var þó ekki bjart í hálfleik því Granada var þá komið 17 stigum undir, 37-54. Granada vann þriðja leikhlutann 17-7, þann fjórða 23-13 og tryggði sér nauman en langþráðan sigur. Jón Arnór skoraði 9 af 15 stigum sínum í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×