Handbolti

Elvar með þrjú mörk í góðrum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Elvar Friðriksson í leik með Val.
Elvar Friðriksson í leik með Val. Mynd/Stefán

Elvar Friðriksson skoraði þrjú mörk fyrir Lemvig er liðið vann góðan sigur á Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í dag, 31-28.

Þetta var fyrsta tap Nordsjælland á leiktíðinni en Lemvig komst upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum. Liðið er með fjögur stig en Nordsjælland fimm.

Århus er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir en AG Kaupmannahöfn kemur næst með sjö stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×