Handbolti

Helga hefur yfirumsjón með úrslitaleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helga Magnúsdóttir.
Helga Magnúsdóttir.
Helga Magnúsdóttir mun hafa yfirumsjón með úrslitaleiknum á EM í handbolta sem lýkur í Noregi og Danmörku á morgun.

Helga á sæti í mótanefnd Handknattleikssambands Evrópu og hefur þar yfirumsjón með mótum kvennaliða.

Hún hefur starfað sem eftirlitsmaður á leikjum á mótinu sem hófst fyrir tæpum tveimur vikum síðan.

Úrslitaleikurinn hefst klukkan 16.00 á morgun en undanúrslitaleikirnir fara fram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×