Handbolti

Rakel skoraði fimm fyrir Levanger

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rakel Dögg Bragadóttir.
Rakel Dögg Bragadóttir.

Rakel Dögg Bragadóttir skoraði fimm mörk fyrir Levanger sem vann útisigur á Storhamar, 29-27, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Levanger hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 12-10, en þjálfari liðsins er Ágúst Þór Jóhannsson.

Þetta var fyrsti sigur Levanger á tímabilinu en liðið er nú með fjögur stig í áttunda sæti deildarinnar.

Ramune Pekarskyte, fyrrum leikmaður Hauka, var markahæst hjá Levanger með átta mörk.

Berglind Íris Hansdóttir og félagar í Fredrikstad töpuðu fyrir Vipers í kvöld, 26-23. Fredrikstad er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×