Handbolti

AGK tapaði sínum fyrstu stigum í vetur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri Steinn á ferðinni með AGK.
Snorri Steinn á ferðinni með AGK.

Danska ofurliðið, AGK, missteig sig í dönsku deildinni í dag þegar Skjern kom í heimsókn. AGK náði aðeins jafntefli, 26-26, í leiknum.

Heimamenn voru dyggilega studdir af 7.200 áhorfendum og fengu tækifæri til þess að klára leikinn. Fengu lokasóknina þegar 15 sek voru eftir.

Sóknin var illa útfærð, liðið kom ekki skoti að marki og leikmenn Skjern fögnuðu góðu stigi gegn danska ofurliðinu. Fyrsta stigið sem AGK tapar.

Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason spiluðu báðir með AGK í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×