Handbolti

Stórsigur hjá AGK

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Danska ofurliðið AG Köbenhavn komst aftur á sigurbraut í dag er liðið tók á móti Lemvig.

AGK hafði örugg tök á leiknum allan tímann og landaði stórum sigri, 34-21.

Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson voru sem fyrr í liði AGK í dag og skoraði Arnór 3 mörk í leiknum og Snorri 5.

Elvar Friðriksson lék með Lemvig og skoraði þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×