Körfubolti

Logi leiddi endurkomu Solna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Anton
Logi Gunnarsson skoraði 14 af 24 stigum sínum í seinni hálfleik þegar Solna Vikings vann 68-62 útisigur á Södertälje Kings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Solna Vikings var þrettán stigum undir í hálfleik, 37-24, en vann seinni hálfleikinn 44-25 þar af vannst lokaleikhlutinn 21-8. Logi var langstigahæsti leikmaður liðsins en hann skoraði tvöfalt meira en næsti maður.

Logi hitti úr 8 af 14 skotum sínum í leiknum þar af setti hann niður 5 af 8 þriggja stiga skotum sínum. Logi var auk stiganna með 4 stolna bolta, 2 fráköst og 1 stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×