Ótrúleg frammistaða Íslendinganna í Sundsvall dugði ekki til Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. mars 2011 19:56 Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Þrátt fyrir að Jakob Sigurðarson hafi skorað 29 stig fyrir Sundsvall Dragons í kvöld dugði það samt ekki til sigurs gegn Jämtland í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld. Logi Gunnarsson og félagar hans í Solna unnu nauman sigur á Norrköping á sama tíma. Jämtland vann leikinn, 86-75, eftir nokkuð kaflaskiptan leik. Sundsvall var með nauma forystu í hálfleik, 43-42, en skoraði svo ekki nema níu stig í þriðja leikhluta. Jämtland tók af skarið og náði mest þrettán stiga forystu snemma í fjórða leikhluta. Þá tóku þeir Jakob og Hlynur Bæringsson til sinna mála en saman skoruðu þeir alls 20 af 23 stigum Sundsvall í fjórða leikhlutanum. Jakob var allt í öllu og skoraði sextán stig í fjórða leikhluta en Hlynur fjögur. Það dugði samt ekki til. Sundsvall náði mest að minnka muninn í þrjú stig þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en þá jók Jämtland aftur muninin og vann sem fyrr segir nokkuð þægilegan sigur. Hlynur fékk sína fimmtu villu í leiknum þegar hálf mínúta var eftir og kláraði því ekki leikinn. Hann skoraði alls níu stig og tók tíu fráköst. Jakob átti sem fyrr segir stórleik en hann gaf sjö stoðsendingar og tók fjögur fráköst auk stiganna 29 sem hann skoraði í leiknum. Hann var langstigahæsti leikmaður Sundsvall í leiknum. Jakob lék í 34 mínútur í kvöld en Hlynur átján. Sundsvall er núverandi deildarmeistari en Jämtland varð í áttunda sæti deildarinnar. Staðan í einvígi liðanna í fjórðungsúrslitum úrslitakeppninnar er nú jöfn, 1-1. Þá unnu Logi og félagar hans í Solna góðan sigur á Norrköping, 81-80, og jöfnuðu þar með metin í 1-1 í rimmu liðanna í fjórðungsúrslitunum. Solna var með yfirhöndina í hálfleik, 44-42, en Norrköping byrjaði mjög vel í þeim síðari og komst mest átta stigum yfir í þriðja leikhluta. En Logi og félagar náðu að jafna leikinn á ný og voru með frumkvæðið lengst af í fjórða leikhluta. Staðan var þó jöfn, 75-75, þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Það var mikil spenna á lokamínútu leiksins en Norrköping komst yfir, 80-79, þegar sextán sekúndur voru eftir. Solna átti þó síðasta orðið og skoraði sigurkörfuna fimm sekúndum fyrir leikslok. Logi skoraði sjö stig og tók fimm fráköst á þeim 33 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira