Körfubolti

Lokaskot Loga geigaði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Logi í leik með Njarðvík.
Logi í leik með Njarðvík.
Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru komnir í sumarfrí eftir naumt tap, 88-90, á heimavelli gegn Svíþjóðarmeisturum Norrköping Dolphins.

Höfrungarnir unnu þar með einvígið, 3-1.

Logi fékk tækifæri til þess að klára leikinn fyrir Solna er ein sekúnda var eftir en þriggja stiga skot hans geigaði.

Logi skoraði annars 6 stig í leiknum, tók 4 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×