Körfubolti

Jón Arnór með fjögur stig í tapi Granada

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Jón Arnór og félagar eru í erfiðum málum.
Jón Arnór og félagar eru í erfiðum málum.
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska körfuknattleiksliðinu Granada, töpuðu í dag fyrir stórliðinu Real Madrid í spænsku deildinni, 65-73. Jón Arnór lék 24 mínútur í liði Granada og skoraði fjögur stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Leikurinn var jafn og spennandi 29-33 fyrir Madrid. Staða Granada í spænsku deildinni er ekki góð því liðið situr á botni deildarinnar með aðeins fimm sigra í 28 leikjum.

Granada er í mikilli fallbaráttu en liðið eru þremur sigrum frá öruggu sæti í deildinni eins og staðan er núna. Hér má sjá stöðuna í spænsku deildinni.

Hér má sjá samantekt úr leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×